Þremur þjóðfánum flaggað í Grafarvogi í vikunni - sá með gulu stjörnunni þekktastur
Við á Grafarvogur.net búum svo vel að geta fylgst daglega með fánunum hjá Ólafi Sverrissyni verkfræðingi sem flaggar jafnan þegar það viðrar vel til þess en hann á stærsta fánasafn einstaklings á Íslandi.
Í þessari vikur hefur hann flaggað fánum þriggja landa sem hafa verið með þjóðhátíðardaga sína í vikunni.
Einn þessara fána er hvað þekktastur.
Það er þessi rauði með gulu stjörnunni en allmargir Íslendingar eiga rætur í þessu landi sem var mikið í fréttum vegna stríðs þar frá árinu 1959 en þó ef til vill mest á árunum 1965 til 1975 þegar Bandaríkjamenn sendu fjölda ungra hermanna í það stríð.
Þessi í miðjunni er smáríki í Evrópu sem við Íslendingar höfum keppt við í knattspyrnu og þar vorum við á ferð fyrir nokkrum árum.
Sá sem er lengst til hægi er fáni ríkis sem liggur frekar í Asíu en austast í Evrópu - og er skammt frá Kaspíahafi.
Löndin eru þessi. Frá vinstri: Víetnam (2. sept.), San Marino (í dag, 3. sept.) og Uzbekistan (1. sept.)
Gaman að þessu og oft lítil og nett getraun að aka framhjá húsinu hans Ólafs í Hamrahverfinu.
Fánarnir hans gera lífið skemmtilegra. - JGH

Þessar þjóðir eiga það sameiginlegt að hafa haldið þjóðhátíðardaga sína hátíðlega í vikunni.

Í dag, fimmtudagurinn 3. september.

Í gær, miðvikudagurinn 2. september.

Í fyrradag, þriðjudagurinn 1. september.

