Gamli staurinn fékk að finna fyrir því við Gufunesveg!
Það var Ljós Tvistar sem sáu um að setja upp nýjan ljósastaur við fjölförnustu og umdeildustu gatnamótin í Grafarvogi í gær.
Við erum auðvitað að tala um gatnamót Gufunesvegar, Strandvegar og Rimaflatar.
Gamli staurinn við Gufunesveginn fékk að finna fyrir því og var ekinn niður - af hverjum vitum við ekki.
En þarna fara tröllvaxin flutningatæki oftar en ekki um á hverjum degi og beygjan er þröng fyrir tröllin.
„Er ekki kominn tími til að tengja?“ segir í vinsælu lagi Skriðjökla.
Það var verið að vinna í því þegar við áttum leið þarna um í hádeginu í gær.
Verði ljós og það verður nýtt ljós - sem og nýtt umferðarljós á staurinn. - JGH

Ljós Tvistar stóð á hurðinni.

Gamli staurinn fékk að finna fyrir því en þessi gatnamót eru sérlega þröng fyrir þau risavöxnu flutningatæki sem eiga þarna leið um daglega.

