Reitir ætla að funda með forráðamönnum Íbúasamtaka Grafarvogs í næstu viku

30. október 2026

Reitir hafa haft samband við forráðamenn Íbúasamtaka Grafarvogs og óskað eftir fundi með þeim í næstu viku. Þetta staðfestir Elísabet Gísladóttir, formaður samtakanna. Hún og Árni Guðmundsson varaformaður munu funda með Reitum í næstu viku vegna áforma fyrirtækisins um að fara í umfangsmikla uppbyggingu á Spönginni með auknu verslunarrými og um 170 til 200 nýjum íbúðum.


Hugmyndir Reita um að bylta Spönginni bar á góma á fundinum með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra hjá Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi í gærkvöldi.


Þar sagði Hildur að ekki yrði farið gegn vilja íbúa í Grafarvogi og að vinnslutillaga Reita - sem svo mjög hefur verið í umræðunni - væri algerlega á ábyrgð fyrirtækisins. Borgin hefði ekki gefið fyrirtækinu nein loforð og ítreka við Reiti að vinna yrði hugmyndina í fullu samráði við íbúa í Grafarvogi. Ekki þýddi að koma með fullmótaðar tillögur sem færu gegn vilja íbúa og þeim væri ætlað að samþykkja eftir á til málamynda.


Á fundinum hvatti hún íbúa til samráðs um þetta mál og láta það sig varða. - JGH.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri á fundinum í Grafarvogi í gærkvöldi. (Mynd: Trausti Harðarson).

Hin „heita kartafla“ - Spöngin í Grafarvogi. Formaður og varaformaður Íbúasamtaka Grafarvogs halda á fund Reita í næstu viku.