Líflegur fundur með Hildi í kvöld. Ekki verður farið gegn vilja íbúa varðandi Spöngina

29. október 2026

Hann var sérlega líflegur og málefnalegur fundurinn með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra hjá Félagi sjálfstæðismanna í Grafarvogi í kvöld. Það var metaðsókn á fundinn eins og við var búist og salurinn troðfullur og meira til; fólk stóð frammi á gangi og fylgdist með umræðunum. Mikil stemning var á fundinum og fékk borgarstjóri mikið lófaklapp. Grafarvogurinn er jú sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins í höfuðborginni.


„HEITA KARTAFLAN“

Hildur kom víða við í erindi sínu og spurningum rigndi síðan yfir hana þegar fyrirspurninir voru leyfðar. „Heita kartaflan“ í Grafarvogi um þessar mundir er Spöngin og þær hugmyndir Reita um að byggja þar 170 til 200 íbúðir ásamt auknu verslunarrými. Íbúar óttast mikla skuggamyndun miðað við þær hugmyndir sem liggja fyrir og að bílastæði verði ónóg. Reynslan frá Móavegi sé afleit þar sem íbúar við þá götu leggja á bílastæðum í nágrenni fjölbýlishúsanna vegna ónógra bílastæða við heimili sín.


EKKERT SAMÞYKKT MEÐ SPÖNGINA

Hildur sagði að ekkert hefði verið samþykkt varðandi Spöngina og ítrekaði að fram komin tillaga Reita væri einvörðungu vinnslutillaga hjá fyrirtækinu. Reitir hefðu engin loforð frá borgarstjórn um framkvæmdirnar og öll vinnsla málsins væri algjörlega á ábyrgð fyrirtækisins. Það kom skýrt fram hjá henni að ekki yrði farið gegn vilja íbúa í Grafarvogi varðandi Spöngina - og þær hugmyndir sem fyrirtækið hefði kynnt yrðu aldrei samþykktar nema að klár vilji og stuðningur væri við þær hjá íbúum í Grafarvogi. Hvatti Hildur íbúa í Grafarvogi til samráðs og að láta málið sig varða.


TEKIÐ VERÐI TILLIT TIL VILJA ÍBÚA

Magnús Ásgeirsson, íbúi í Grafarvogi, sat fundinn fyrir hönd Grafarvogs.net og sagði að Hildur hefði verið mjög skýr og afdráttarlaus í því að Reitir yrðu að eiga samtal og samráð við íbúa við að móta hugmyndir sínar varðandi Spöngina og hlusta eftir vilja þeirra - og alls ekki framkvæma án samráðs og sáttar eða koma með fullmótaðar tillögur sem íbúum væri ætlað að samþykkja eftir á án þess að þeir hefðu haft aðkomu að málinu á fyrri stigum þess. Þetta hefði borgin ítrekað í öllum samtölum við fyrirtækið.

Metaðsókn var á fundinum sem þótti sérlega líflegur og málefnalegur. (Mynd: Diljá Mist).

VEGGJÖLD INNAN BORGARINNAR KOMA EKKI TIL GREINA

„Hildur ræddi um samgöngusáttmálann,“ segir Magnús. „Hún sagði að það kæmi ekki til greina hjá núverandi meirihluta að fjármagna vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu með veggjöldum innan borgarinnar eins og hugmyndir væru uppi um.“


Þá kæmi heldur ekki til greina að taka ökuleiðir undir Borgarlínu og engin akrein yrði tekin af Gullinbrú fyrir hana. Hún nefndi að þegar hefði verið horfið frá hugmyndum fyrri meirihluta um að fækka akreinum á Suðurlandsbraut vegna Borgarlínu.


Magnús segir að Hildur hafi farið yfir umræðu að undanförnu um bókasöfnin og alls ekki stæði til að loka neinum söfnum, en hins vegar væri rík áhersla lögð á að efla þau þannig að meiri hvatning yrði fyrir börn og unglinga að sækja þau í auknum mæli. „Efla yrði lestur yngri sem eldri; það væri mjög mikilvægt í nútímaþjóðfélaginu og gæti dregið úr óeðlilegum skjátíma.“

Hildur fékk mikið lófaklapp á fundinum í Grafarvogi í kvöld. Atli Guðjónsson, formaður Félags sjálfstæðismanna í Grafaravogi, er hér í ræðupúlti og býður hana velkomna. (Mynd: Trausti Harðarson).

UMTÖLUÐ GATNAMÓT

Gatnamótin við Strandveg, Rimaflöt og Gufunesveg hafa verið mjög til umræðu hjá íbúum í Grafarvogi og þau bar á góma, að sögn Magnúsar.


„Borgarstjóri telur mikilvægt að lagfæra þessi gatnamót til að liðka betur fyrir flæði umferðar um þau. Núverandi ástand sé óviðunandi og þegar sé byrjað að vinna í málinu.“


HÖFÐABAKKINN

Þá kom fram hjá Hildi að vinna væri hafin við að skipuleggja endurbætur á öllum gatnamótum við Höfðabakka og búið væri að taka frá fjármagn í fjárfestingaráætlun.


TÆKNISKÓLINN Í ÚLFARSÁRDAL?

„Hún minntist einnig á viðræður við Tækniskólann um framtíðarhúsnæði og hugmyndir væru um Úlfarsárdal eða Halla við Vesturlandsveg og svo Keldnaholt. Viðræður væri í gangi til að leysa þau mál á farsælan hátt enda myndi þá atvinna í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins eflast.“

Hildur hélt fyrst hálftíma erindi og svaraði svo spurningum fundarmanna. (Mynd: Trausti Harðarson).

Sundabraut bar á góma á fundinum og þar hugnast Hildi göng frekar en brú þegar kemur að  Grafarvogi og tengingunni við Vogahverfið.


STAÐA INNVIÐA HRÆÐILEG

„Um innviðina í borginni sagði Hildur að staðan væri í raun hræðileg og að innviðaskuld væri mikil í viðhaldi húsnæðis, leikskóla, skólabygginga og víðar auk þess sem sjóðir væru mjög rýrir núna.“


SÝNA ÞARF 17. JÚNÍ MEIRI SÓMA

Og borgarstjóri ræddi sjálfan þjóðhátíðardaginn og hátíðarhöld þess dags. „Og nefndi að dregið hefði úr hátíðleika hjá fyrri meirihluta, en þessu þyrfti að breyta og koma hátíðarhöldum út í hverfin þar sem fólkið væri og gera daginn eftirminnilegan og að raunverulegri hátíð aftur.“

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri á fundinum í kvöld.  (Mynd: Magnús Ásgeirsson).

DEILAN UM HÆÐARPUNKTANA Í GUFUNESI

Fjölmargt annað bar á góma á fundinum og meðal annars margumtöluð deila í Gufunesi sem snýr að hæðarpunktum þar en hjónin Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir í fyrirtækinu Loftkastalanum hafa átt í deilu við borgina í nokkur ár og Grafarvogur.net hefur ítrekað fjallað um. Fram kom hjá Hildi að utanaðkomandi, óháð nefnd verður skipuð til að fara ofan í saumana á því máli. - JGH / Magnús Á.

Borgarstjóri sagði mjög mikilvægt að auka frelsi á húsnæðismarkaði og horfa frá stefnu fyrri meirihluta. (Mynd: Magnús Ásgeirsson).