Hrekkjarvökuna ber núna upp á nammi-daginn sjálfan. Búningafár í Grafarvogi á morgun

30. október 2026

Hrekkjarvakan er ævinlega 31. október ár hvert og svo vel vill til fyrir ungviðið að hún ber upp á nammi-daginn sjálfan á morgun, laugardag. Börn munu þyrpast í hús í Grafarvogi á morgun til að fá nammi í stærri skömmtun en á venjulegum laugardögum.


Miðað við reynslu fyrri ára má gera ráð fyrir að „mikið verði um dýrðir“ við mörg heimili í Grafarvogi á morgun þar sem graskerin verða áberandi utandyra. Sem og auðvitað búningafár á meðal barna og fullorðinna. Það er orðinn fastur liður hjá þeim sem fara inn í þetta hrekkjarvökudæmi að klæðia sig upp í hryllilega, skemmtilega og frumlega búninga.


Eins og gengur fara sumir alla leið og nota gerviblóð, hárkollur, litaða andlitsmálningu og latexgrímur.


Dagatalið fyrir hrekkjarvöku næstu ára lítur annars svona út:

31. okt. 2026, laugardagur.

31. okt. 2027, sunnudagur.

31. okt. 2028, þriðjudagur.

31. okt. 2029, miðvikudagur.

31. okt. 2030, fimmtudagur.

31. okt. 2031, föstudagur.


Þá vitum við það - og þið sem ætlið alla leið í herlegheitunum á morgun getið byrjað að undirbúa ykkur fyrir meira en morgundaginn og hugsa svolítið fram í tímann. - JGH

Já, já. Hrekkjarvökugrímur þar sem gerviblóð og hárkollur eru áberandi.