Það fór vel á því að Grafarvogsbúinn Pálína Guðjónsdóttir afhenti mér fyrsta eintakið

24. mars 2026

Það er alltaf stór stund og ánægjuleg að skjótast í prentsmiðjuna og ná í fyrstu eintökin af blöðum sem maður gefur út. 


Og það fór sérlega vel á því að Grafarvogsbúinn Pálína Kristín Guðjónsdóttir í prentsmiðjunni hér í nágrenni okkar Grafarvogsbúa, Prentmeti Odda, afhenti mér fyrstu eintökin af blaðinu mínu Fjármál og ávöxtun sem hefur verið í dreifingu að undanförnu og fengið góðar viðtökur.


Þetta er blað sem ég gef út í samvinnu við Samtök sparifjáreigenda en þau kaupa ákveðinn fjölda eintaka af mér fyrir sína félagsmenn en annars er blaðið ókeypis og hægt að nálgast það hér: 

Pálína er alin upp í Þykkvabænum og eins og svo margir aðrir sem flytjast til Reykjavíkur valdi hún að setjast að í Grafarvoginum. Sagði að hann væri sérstakur og hefði eitthvað mikið við sig og að tilfinningin væri sú að hverfið væri svolítið út af fyrir sig og það hentaði mörgum sem væru að flytjast til borgarinnar.


Þetta er svo sannarlega rétt en margir sem fæddir eru og uppaldir úti á landi hafa áður haft á orði að Grafarvogurinn hent þeim og að þar finni þeir sig vel. - JGH

Tímaritið Fjármál og ávöxtun 2026. Þetta er níunda árið sem ritið kemur út. Það gerir árlega könnun á ávöxtun allra innlánsreikninga og verðbréfasjóða á Íslandi. Sem og birtir það umfjöllun um Kauphöllina, fyrirtækin í henni, lífeyrissjóðina, stærð bankakerfisins og annan fróðleik um fjármál. Hér má sjá blaðið í heild sinni.

Grafarvogsbúarnir Jón G. Hauksson og Pálína Kristín Guðjónsdóttir við afhendingu fyrstu eintakanna í Prentmeti Odda. Gæðaprentun á blaðinu.