Til hamingju nágrannar okkar í Úlfarsárdalnum - Framarar vinna tvöfalt
TIL HAMINGJU nágrannar okkar í Úlfarsárdalnum en Framarar urðu í gærkvöldi Íslandsmeistarar í handbolta eftir háspennuleik á móti Val á Hlíðarenda og sigruðu með eins marks mun; 28-27.
Framarar urðu bikarmeistarar í handbolta fyrr í vetur og vinna því tvöfalt að þessu sinni.
Framarar unnu úrslitaeinvígið við Valsmenn 3-0, þ.e. unnu alla leiki sína í einvíginu. Það er vel gert því Valsmenn eru mjög sterkt lið.
Meðfylgjandi myndir tók hinn flinki ljósmynari Morgunblaðsins, Eggert Jóhannesson, en blaðið er með umfangsmiklar fréttir af úrslitaleiknum.

Framarar unnu þriðja leikinn gegn Valsmönnum á heimavelli Vals á Hlíðarenda í gærkvöld og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. (Mynd mbl.is Eggert Jóhannesson).