Rabarbarinn rýkur upp í Grafarvogi!
Þótt það hafi andað svolítið köldu í vor þá virðist þessi rabarbari rjúka upp og vaxa hratt en ég rakst á hann í minni daglegu morgungöngu um hverfið. Annað heiti yfir rabarbara er tröllasúra.
Ég sá þessa lýsingu á netinu: „Stöngull rabarbarans er rauðleitur, stökkur og getur orðið jafn breiður og barnshandleggur. Blaðið upp af stilknum er mikið og breitt og grófgert og er stundum nefnt rabarbarablaðka.
Stilkur rabarbarans er mikið notaður í sultugerð, rabarbarasúpu og stundum einnig í saft- og víngerð. Neðsti hluti stilksins er hvítur og er oft soðinn niður.“
Í bernsku minnist ég þess að súrum rabarbaranum var velt upp úr sykri (til að fá sætuna) svo hægt væri að smakka á honum.
Sultan er hins vegar best - að mínu mati. - JGH

Það dafnar allt vel í Grafarvogi.

