Þetta er saga um sigur hugrekkis, vilja og bjartsýni - mögnuð bók og sýning Geirs Ólafssonar

24. maí 2026

Orðin hugrekki, vilji og bjartsýni eiga vel við vin minn Geir Ólafsson ljósmyndara sem glímir við Parkinson-sjúkdóminn. Sannast sagna komst ég við á sýningu hans á fjölda nýlegra mynda í húsnæði Parkinsonsamtakanna á St. Jósefsspítala um síðustu helgi en sýningin nefndist Skálfti og var jafnframt útgáfuhóf á samnefndri ljósmyndabók hans.


Salurinn var smekkfullur af áhugasömum gestum en sýningin stóð yfir í aðeins þrjár klukkustundir á sjálfan kosningadaginn. Og þvílíkar viðtökur sem bókin og myndirnar fengu. Enda engin furða, þær eru magnaðar og sérlega listrænar – en umfram allt eru þær saga og sigur hugrekkis, vilja og bjartsýni.

Það var sérlega ánægjulegt fyrir okkur Helgu að hitta Geir á stórkostlegri þriggja tíma ljósmyndasýningu hans en sýningin, sem bar heitið Skjálfti, var jafnframt útgáfuhóf samnefndrar ljósmyndabókar hans.

Geir var ljósmyndari Frjálsrar verslunar í tuttugu ár þann aldarfjórðung sem ég ritstýrði tímaritinu. Sennilega hefur enginn ljósmyndari tekið jafn margar myndir af konum í  atvinnulífinu. Oft á tíðum gáfum við út hnausþykk tölublöð sem prýddu tugi og hundruð mynda eftir Geir, stórar sem smáar. Þeir voru oft langir og erilsamir vinnudagarnir þegar nálgaðist prentsmiðju og ekki vafðist það fyrir kappanum að mynda á kvöldin eða um helgar ef það var tíminn sem hentaði viðmælendum.


Við hættum báðir á blaðinu þegar það var selt frá útgáfufélaginu Heimi; Talnakönnun, vorið 2017. Árið eftir, þegar Geir var 52 ára, reið áfallið yfir þegar hann greindist með Parkinson-sjúkdóminn. Hann lagði myndavélina á hilluna. En fyrir rúmu ári teygði hann sig í hana og byrjaði aftur að mynda. Hann sá tækifæri í þeirri listsköpun að taka myndir skjálfandi; taka hreyfðar myndir.


Hann sagði á sýningunni að það hefði verið ákvörðun að snúa blaðinu við og að láta sjúkdóminn ekki yfirtaka allt og skyggja á það ljósa, fallega og góða sem lífið hefði þrátt fyrir allt upp á að bjóða – og sem glitraði svo sannarlega á þar sem hann var í breiðum faðmi fjölskyldunnar á sýningunni.

Svanavatnið gæti nafn þessarar fallegu myndar verið. Ein af mörgum mögnuðum myndum Geirs úr bókinni Skjálfti sem hann hefur gefið út og er vel þess virði að eiga.

Þegar landsmenn risu misjafnlega glaðir úr rekkju sl. sunnudag, morguninn eftir kosningar, var afmælisdagur okkar manns runninn upp; sextugur og sigurreifur á þjóðhátíðardegi Norðmanna eftir einstaka sýningu og útgáfuhóf.


Til hamingju Geir – þú ert magnaður og öðrum til fyrirmyndar!


Áfram þú.


P.S. Þeir sem vilja nálgast bókina Skjálfta eða kaupa einstakar myndir úr henni geta sent skilaboð á Geir á netfangið geirljosmyndari@gmail.com

Mögnuð mynd og tímalaus.

Reiðmenn vindanna.

Skjálfti er einstök ljósmyndabók. Þeir sem vilja nálgast bókina Skjálfta eða kaupa einstakar myndir úr henni geta sent skilaboð á Geir á netfangið geirljosmyndari@gmail.com

Geir með bókina Skjálfta við uppsetningu samnefndrar ljósmyndasýningar sinnar á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði um síðustu helgi. Ljósmynd: Vilhelm Gunnarsson á Vísi.