Sá blái víða í vindinum blakti. Þegar hinn heilagi andi kom yfir postulana

24. maí 2026

Það var víða flaggað í Grafarvoginum í morgun, á hvítasunnudegi, enda dagurinn einn af hátíðardögum kirkjunnar og opinber fánadagur. Morgundagurinn, annar í hvítasunnu, er almennur frídagur á Íslandi og víðar í Evrópu.


Hvítasunnudagur er jafnan 50 daga eftir páska og er formlegur stofndagur kirkjunnar.


Hann er til minningar um að heilagur andi kom yfir postulana svo að þeir fóru að prédika á ókunnum tungum og boða kristna trú sem varð til þess að fólk gekk Kristni á hönd.


Opinber fánadagur og þeir blöktu víða við hún fánarnir í Grafarvogi í dag.


Svolítill vindur hjálpaði til. - JGH

Hvítasunnudagur og opinber fánadagur. Enda blöktu fánar víða við hún í Grafarvoginum í dag.

Þeir bláu í vindinum blöktu.