Er þetta lægsta merki biðskyldu í heimi? Þau gerast að minnsta kosti ekki mikið lægri!
30. júlí 2026
Það er alveg hægt að velta því fyrir sér hvort þetta sé ekki lægsta biðskyldumerki í heimi. Þau gerast að minnsta kosti ekki mikið lægri.
Þetta er biðskyldumerkið þegar ekið er inn að Höfðabakka 9.
Við myndatökur við Höfðabakkann í gærkvöldi varð mér starsýnt á þetta merki.
Ekki það að ég þekkti ekki skilaboðin en bílstjórar í bílum í stærri kantinum líta bókstaflega niður á þetta merki þótt þeir beri örugglega virðingu fyrir því.
Að vísu er merkið svolítið beyglað.
Ég held að það sé augljós skýring á því!
- JGH

Stóri bróðir er þarna við hliðina - svolítið fölur blessaður.

Smá beygla á skiltinu. Það er augljós skýring á því - ekki satt?


