Pálmasunnudagur í dag - innreið Jesú í Jerúsalem. Hvers vegna nefnist þessi vika dymbilvika?
Pálmasunnudagur er í dag og markar upphaf dymbilviku. Pálmasunndudagur er ævinlega sunnudagurinn á undan páskadegi og er haldinn til minningar um innreið Jesú í Jerúsalem. Víða á heimilum eru settar upp páskaskreytingar á pálmasunnudegi í tilefni af upphafi dymbilvikunnar og páskahátíðarinnar.
Pálmasunnudagur er haldinn til minningar um innreið Jesú í Jerúsalem. Sagt er frá þeim atburði í Jóhannesarguðspjalli 12;12-16: „Degi síðar frétti hinn mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem. Fólk tók þá pálmagreinar, fór út á móti honum og hrópaði:„Hósanna!
Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins,
konungur Ísraels!“
Pálmasunnudagur miðast við páskadag en hann hefur allt frá árinu 325 borið upp á fyrsta sunnudegi eftir fyrsta fulla tungl eftir jafndægri á vori.
Dymbilvikan dregur nafn sitt af áhaldi er nefnist dymbill. Það var notað í kaþólskum sið til að hljóðið yrði drungalegra og sorglegra þegar hringt var til guðsþjónustu á þessum síðustu dögum föstunnar. - JGH

Í hugum flestra er páskaliturinn gulur. Litur páskanna er hins vegar hvítur, litur gleðinnar, en bjarti guli liturinn minnir á upprisusólina sem dansar á páskadagsmorgun.

„Til er helgisögn sem segir að eitt sinn hafi páskaliljurnar verið hvítar. En þegar sól reis á páskamorgni og Jesús var ekki í gröfinni, því að hann var upprisinn frá dauðum, þá var birta sólarinnar svo gullin af fögnuði að páskaliljurnar urðu gular,“ segir á Vísindavef Háskóla Íslands.

