Hríðarveður undir kvöldmat og víða varð mjög illfært í Grafarvogi

28. mars 2026
Veðrið er fljótt að breytast. Eftir þokkalegt veður fyrri hluta dags í dag gerði síðdegis verulegt hríðarkóf og undir kvöldmat, þegar þessi mynd var tekin, var víða orði illfært í Grafarvogi.

Myndin er tekin við hin umtöluð gatnamót við Strandveg, Gufunesveg og Rimaflöt. 

Rautt ljós þegar ekið var úr norðri og gatnamótin auð í óþarflega langan tíma eftir að tveir bílar úr suðri höfðu farið yfir þau, annar inn á Rimaflöt og hinn inn á Gufunesveginn.

Kvartað hefur verið yfir því að óþarflega miklar tafir verði við þessi gatnamót þar sem umferðin úr norðri og suðri eftir Strandveginum flýtur ekki yfir þau á sama tíma. - JGH 

Tveir bílar úr suðri búnir að fara yfir gatnamótin við Strandveg, Gufunesveg og Rimaflöt í kófinu. Eftir það tók talsverð bið á rauðu þegar engin umferð var yfir gatnamótin.

Óþarflega löng bið á rauðu þegar tveir bílar úr suðri voru „löngu búnir“ að tæma gatanmótin. Sitt sýnis hverjum um þessi gatnamót og til hvaða úrræða eigi að grípa til að liðka til fyrir umferð um þau.