Það hefur mætt mikið á honum í dag. Þorsteinn er svæðisstjóri nýju stöðvar Sorpu
Þorsteinn Óskar Þorsteinsson, svæðisstjóri Sorpu á nýju Lambhagastöðinni, hefur starfað hjá Sorpu í þrettán ár. Hann var um tíma svæðisstjóri á Sævarhöfðanum en síðan lá leiðin á stöðvar Sorpu í Hafnarfirði og Breiðholti.
„Það er bara ein stöð sem dettur út með tilkomu þessarar stöðvar og það er Sævarhöfðinn. Stöðin í Mosfellsbæ verður áfram starfrækt. Þessi stöð er svo sem ekki fyrir nein sérstök hverfi heldur alla á höfuðborgarsvæðinu, þótt Grafarvogurinn, Grafarholtið og Mosfellsbær liggi nú næst henni,“ segir Þorsteinn Óskar.
Það hefur auðvitað mikið mætt á honum á þessum opnunardegi stöðvarinnar. Enda stöðin líklegast glæsilegasta og flottasta móttökustöð rusls í allri Evrópu. - JGH

Þorsteinn Óskar Þorsteinsson, svæðisstjóri Sorpu á nýju Lambhagastöðinni.

