„Gengið mjög vel og engir alvarlegir hnökrar,“ - segir Þorsteinn Óskar svæðisstjóri Sorpu

1. september 2026

„Þetta hefur gengið mjög vel og engir alvarlegir hnökrar komið upp frá því við opnuðum í morgun, þótt eflaust sé alltaf hægt að herða einhverja bolta fastar,“ segir Þorsteinn Óskar Þorsteinsson, svæðisstjóri Sorpu við nýju Lambhagastöðina og greinilega vel sáttur með hvernig til hefur tekist með opnunardaginn og auðvitað nýju stöðina sem er afar glæsileg.



Þessi nýja stöð Sorpu við Lambhagaveginn tekur við af Sorpu við Sævarhöfðann sem þjónað hefur Grafarvogsbúum í áraraðir. Stöðin er þrisvar sinnum afkastameiri en gamla stöðin við Sævarhöfðann.



Stöðin er öll hin tæknilegasta og er framar öllum vonum í glæsileika. „Þetta er glæsilegasta móttökustöð rusls í Evrópu, svo tæknileg og mögnuð er hún,“ segir Þorsteinn. „Hér er allt úthugsað.“



„Hér verður flöskumóttaka frá Endurvinnslustöðinni, þeir eru ekki alveg tilbúnir með sinn búnað, hér er áhaldageymsla, góð aðstaða fyrir starfsmenn, rými fyrir spilliefni og smá raftæki og Góði hirðirinn verður með lítið útibú.“

Nýja Lambhagastöðin afkastar þrisvar sinnum meira en Sorpa við Sævarhöfðann.

Þrátt fyrir tvö hlið á þetta að ganga greiðlega fyrir sér. Það eru fjórar akreinar á „brúnni“ við gámana. Stöðin er þrisvar sinnum afkastameiri en sú við Sævarhöfðann.

Fjórar akreinar eru á „brúnni“ við gámana og er ein þeirra þannig að á henni má ekki stöðva bíla heldur er hún eingöngu fyrir þá sem hafa losað rusl og þurfa að komast í burtu. Allt gert til að hafa sem fæsta flöskuhálsa.


Merkingar fyrir hvern gám eru mjög góðar og auðvelt að losa sig við ruslið „á brúnni“ svo notað sé tæknilegt orð þeirra Sorpumanna.


Hvað um það, tvö hlið inn á svæðið og þá vaknar spurningin hvort ekki geti orðið umferðartafir.


„Ég held ekki, vonum að minnsta kosti ekki enda er stöðin þrisvar sinnum afkastameiri en stöðin við Sævarhöfða og bæði aðgengi að gámunum og leiðin út hönnuð þannig að þetta gangi hratt og vel fyrir sig.“


- Þetta er sem sagt hringur í gegnum stöðina?


„Já, við erum að tala um hringrásarkerfið,“ segir Þorsteinn Óskar að bragði.


Gott svar! - JGH

Hreinir og fínir gámar á opnunardegi.

Það er stundum talað um að vera í „innsta hring“.