Ólíkt hafast bæjarfélögin að - ennþá er ekkert að frétta af slætti í Grafarvogi
ILLGRESI OG ENGINN SLÁTTUR! Ólíkt hafast þau að bæjarfélögin Kópavogur og Reykjavík. Það er sláandi í orðsins fyllstu að aka Stekkjarbakkann í vestur að hringtorginu á mörkum Kópavogs og Reykjavíkur.
Til vinstri við verslunina Tengi er merki Kópavogsbæjar og þar er bærinn búinn að slá fyrir nokkru en svo er ekki Reykjavíkurmegin.
Grafarvogur.net hefur verið með harða gagnrýni á borgaryfirvöld fyrir algjöran slugshátt í umhirðu í Grafarvogi og hvers vegna í ósköpunum borgin slái ekki grasið við gangstéttir og vegkanta í hverfinu. En það er ekkert að frétta!
Óræktin er oðin æpandi!
Örfáir Grafarvogsbúar hafa sent mér línur um að fegurðin felist í óræktinni. Sú fagurfræði er nú ekki almenn, að mínu mati. - JGH

Við hringtorgið við Smiðjuveginn í Kópavogi á mörkum Kópavogs og Reykjavíkur. Slegið Kópavogsmegin en ekkert að frétta borgarmegin.

Á svæði sem borgin á að slá og hirða í Hamrahverfinu í Grafarvogi - rétt við eina gangstéttina. Óræktin er æpandi.

Hér er slegið - slöku við.