Óvæntur stuðningur! Borgin auglýsir grænt svæði sem betra umhverfi og betri borg

27. maí 2025
BORGIN AUGLÝSIR RÖK GRAFARVOGSBÚA! Þessi auglýsing Reykjavíkurborgar blasir núna við Grafarvogsbúum á auglýsingaskilti gegnt Olís-stöðinni. Hún vekur svo sannarlega athygli því í henni notar borgin rök Grafarvogsbúa gegn þéttingu. Þarna auglýsir borgin grænt svæði sem betra umhverfi og betri borg; og vísar í Heiðmörk. 

Meirihlutinn í borgarstjórn áformar stórfellda þéttingu byggðar í Grafarvogi og fer í þeim efnum gegn eindregnum vilja íbúa í Grafarvogi sem hafa vísað til mikilvægi grænna svæða sem umhverfis sem sé til bóta og geri borgina betri. 

Hvað er í gangi? Óvæntur stuðningur? Vonandi.

Meirihlutinn í borgarstjórn hefur til þessa lítið viljað með mótmæli Grafarvogsbúa hafa en gengst svo við rökum þeirra í þessari auglýsingu - og það þótt vísað sé til Heiðmerkur en að því svæði standa þrjú bæjarfélög; Reykjavík, Kópavogur og Garðabær. 

Heiðmörkin er ágæt en borgin ætti auðvitað að einblína meira á nærsamfélagið í auglýsingunni og birta mynd af iðandi borgarlífi í Grafarvogi á grænum svæðum með trjágróði og hjóla- og göngstígum - einmitt það sem verður fyrir barðinu á fyrirhugaðri þéttingu.

Á bak við auglýsingaskiltið er svæði sem borgin á að slá og hirða. Sláttur og snyrtimennska væri betra umhverfi - betri borg! 

Hún stingur í stúf þessi auglýsing frá borginni; altént miðað við það sem á undan er gengið í Grafarvogi.

Fréttin hefur verið uppfærð. - JGH