Ólafur og Kolbrún verða í Bítinu á Bylgjunni í fyrramálið og ræða brottrekstur hjólafólksins
Ólafur Guðmundsson, íbúi í Grafarvogi og umferðarfræðingur, hefur dregið upp baráttuhanskann fyrir Samtök hjólafólks, og mætir í Bítið á Bylgjunni í fyrramálið (kl. 07:20) ásamt Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, þingmanni Flokks fólksins, sem hefur látið sig þetta mál sömuleiðis varða. Hún hefur nú ásamt fleiri þingmönnum lagt fram þingsályktunartillögu um að skapa lagagrundvöll fyrir varanlegri búsetu í hjólhýsum, húsbílum og öðrum samþykktum færanlegum búsetueiningum. Sjá hér.
Þau Ólafur og Kolbrúna hafa látið sig hjólhýsabyggðina varða um nokkurra ára skeið en Kolbrún segist þekkja baráttu þessa fólks vel frá því hún sat í borgarstjórn. Ólafur sat sömuleiðis í borgarstjórn á árunum 2018 til 2022 og varaborgarfulltrúi kjörtímabilið þar á undan. Þau Kolbrún tóku málið upp þegar hjólhýsabyggðin var leyst upp á tjaldsvæðinu í Laugardal sumarið 2023 og eigendum hjólhýsa og húsbíla gert að yfirgefa Laugardalinn.
Þess má geta að Ólafur mætti á fund borgarstjóra hjá Félagi sjálfstæðismanna í Grafarvogi í síðustu viku og spurði borgarstjóra þar nokkurra spurninga um hjólhýsabyggðina við Sævarhöfða og sendi borgarstjóra strax í kjölfar fundarins harðort bréf þar sem hann bað borgaryfirvöld að sýna íbúum hjólhýsabyggðarinnar við Sævarhöfða vægðar og skrúfa ekki fyrir rafmagn og vatn hjá þeim daginn eftir, þ.e. 1. nóvember.

Kolbrún Áslaugar
Baldursdóttir, þingmaður Fólks flokksins, verður með Ólafi Guðmundssyni í Bítinu á Bylgjunni í fyrramálið.
Ekki fer á milli mála að mjög skiptar skoðanir eru á meðal Grafarvogsbúa um þessa hjólhýsabyggð, hversu mikinn rétt hún eigi á sér og hversu skyldug borgin sé til að finna lausnir í þessu máli.
Sjá mátti á samfélagsmiðlum í kjölfar fréttar okkar í gærkvöldi um að skrúfað hefði verið fyrir rafmagn og vatn á svæðinu að það væru ekki aðeins harkalegar aðgerðir heldur hrein mannvonska og andstyggilegt á allan hátt - á meðan aðrir höfðu ekki jafnmikla samúð með hjólhýsafólkinu og voru á þeirri skoðun að hjólahúsabyggð ætti ekki að vera á forræði borgarinnar, væri alls ekki ákjósanlegt fyrirkomulag og þess utan ólögmætt. Það væri ekki borgarinnar eða sveitarfélaga að búa til reiti fyrir sérstakar hjólhýsabyggðir heldur yrðu eigendur hjólhýsanna að finna út úr sínum málum sjálfir og gætu ekki varpað allri ábyrgð á borgina varðandi þann vilja þeirra að hafa fasta búsetu í húsbílum og hjólhýsum.
Það er einmitt í ljósi þessarar óvissu um lögmæti fyrirkomulagsins sem Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður hefur nú ásamt fleiri þingmönnum lagt fram þingsályktunartillögu um að skapa lagagrundvöll fyrir varanlegri búsetu í hjólhýsum, húsbílum og öðrum samþykktum færanlegum búsetueiningum.
Aðstaða hjólhýsafólksins við Sævarhöfða var bráðabirgðaúrræði eftir að þeim var gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal sumarið 2023. Síðan eru liðin þrjú ár.
Reiturinn í Gufunesi, sem síðasti meirihluti lét Samtök hjólafólks fá korteri fyrir kosningar sl. vor, var sömuleiðis til bráðabirgða en um tveggja ára samning var að ræða sem var riftanlegur með þriggja mánaða fyrirvara af beggja hálfu. Nýr meirihluti í borginni nýtti sér það ákvæði í samningnum og sagði honum upp sl. sumar áður en framkvæmdir á svæðinu í Gufunesi hæfust fyrir flutning hjólhýsabyggðarinnar - og án þess að finna henni annan stað.
Lausnin er ekki alveg í sjónmáli og í þessu máli er tekist á, skoðanir eru mjög skiptar og borgarbúar eru alls ekki allir á sama máli um svona hjóhýsabyggðir.
Ólafur og Kolbrún hafa hins vegar dregið upp baráttuhanskann fyrir hönd Samtaka hjólafólks.
Þetta mál er að stigmagnast.
- JGH

Frá hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða.

Klúbbhúsnæði hjólhýsabyggðarinnar við Sævarhöfða - Samaka hjólafólks.


