Herferð tveggja 15 ára stúlkna um að fá strætó aftur í Borgirnar. Biðla til Grafarvogsbúa!

4. nóvember 2026

Það er alltaf eitthvað kraftmikið og skemmtilegt þegar ungt fólk hrindir af stað herferð um að ná einhverju fram. Þessar tvær 15 ára stúlkur í Borgahverfinu í Grafarvogi eru gott dæmi um það. Þær hafa hafið einhvers konar grasrótarherferð um að fá strætó aftur í Borgirnar í Grafarvogi og biðla til allra Grafarvogsbúa um að leggja málinu lið og senda tölvupóst á borgarstjóra, borgaryfirvöld og Strætó um að kippa þessu í liðinn.


Þær heita Auður Andradóttir og Júlíana Hrefna Gunnarsdóttir og hafa meira að segja útbúið og látið prenta einblöðung með fyrirsögninni Strætó aftur í Borgirnar. Og það sem meira er; þær munu ganga í hús á næstunni og dreifa boðskapnum.

Í áskoruninni segir:


„Áður gekk strætó um Dverga, Dofra, Goða, Huldu, Trölla, Jötna og Æsuborgir en sú leið var lögð niður. Nú þurfa margir íbúar að ganga lengra að næstu stoppustöð, jafnvel í snjó, hálku og roki.


Við viljum bæta aðgengi að strætó svo auðveldara verði að komast í skóla, vinnu, á æfingar og sinna daglegum erindum.“


Svo skrifa þær: ÞÚ GETUR HAFT ÁHRIF. Hjálpaðu okkur við að koma óskinni á framfæri með því að senda stuttan tölvupóst á Reykjavíkurborg og Strætó.“


Síðan gefa þær upp netföng sem hægt er að senda á og bæta við slagorðinu SAMAN GETUM VIÐ HAFT ÁHRIF!


Þær skrifa svo undir: Frumkvæði tveggja íbúa Borganna. Júlíana & Auður.


Þær stöllur eru í sama bekk og klára grunnskólann næsta vor. Þess má geta að Júlíana Hrefna er mjög liðtæk í knattspyrnu og staðið sig mjög vel með Fjölni.


Við á Grafarvogur.net segjum einfaldlega; vel gert stelpur og skemmtilegt framtak hjá ykkur í alla staði! - JGH

Auður Andradóttir og Júlíana Hrefna Gunnarsdóttir. Kraftmiklar 15 ára dömur í Grafarvogi sem hrint hafa af stað herferð um að fá strætó aftur í Borgirnar.