Haustlitirnir komnir á kreik. Dagur íslenskrar náttúru 16. sept. og haustjafndægur 23. sept.
Þótt enn sé sumar og haustjafndægur séu ekki fyrr en 23. september nk. þá eru haustlitirnir komnir á kreik og farnir að gera sig klára fyrir stærra hlutverk næstu vikurnar.
Dagur íslenskrar náttúru er aðeins fyrr, eða 16. september ár hvert. og er til að vekja athygli á mikilvægi og fegurð íslenskrar náttúru en dagurinn er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar þeim mikla náttúruunnanda.
Þessa mynd tókum við í Grafarvoginum í dag og máttum til í kyrrð og fallegu veðri. Heitt yfir hádaginn en svo kólnar nokkuð skarpt þegar sólin lækkar á lofti.
Haustið hefur sinn sjarma líkt og árstíðarnar allar í landi hinnar fallegu náttúru.
Það laðar fram litadýrð og oft á tíðum langa og skemmtilega skugga.
Og græni liturinn víkur fyrir gulum, appelsínugulum, rauðum og brúnum tónum.
- JGH

Græni liturinn er aðeins byrjaður að gefa eftir.

Svartþrösturinn goggast í þessi þegar líður á haustið og þau verða tilbúin.
Það er ekki nema rúmur hálfur mánuður í haustjafndægur.

Dagur íslenskrar náttúru er hafður 16. september til heiðurs Ómari Ragnarssyni sem er fæddur á þessum degi.


