Mótmælin báru árangur. Nýi meirihlutinn hættir við þéttingu byggðar í Grafarvogi

3. júlí 2026

Meðfylgjandi mynd birtist á Grafarvogur.net af fundi í Borgum hinn 20. mars í fyrra, 2025.


Þetta var fundur um áform þávarandi meirihluta um þéttingu byggðar í Grafarvogi. Grafarvogsbúar troðfylltu salinn og mótmæltu harðlega fyrirhugaðri þéttingu. Þetta varð mikill hitafundur.


Þetta var aðeins einn af nokkrum stórfundum Grafarvogsbúa þar sem þeir mótmæltu þéttingunni.


Núna hafa mótmæli Grafarvogsbúa borið árangur. Áform um þéttingu byggðar hafa verið lögð til hliðar.


„Við hétum því að afturkalla þéttingaráformin í Grafarvogi og erum að standa við það loforð. Við munum í framhaldinu skoða ný tækifæri í góðu samráði við íbúa og á grundvelli þarfa hverfisins. Það er mikilvægt að hverfi borgarinnar fái að njóta sérstöðu sinnar og við ætlum okkur að hlusta á íbúa,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið í morgun.


Meirihluti borgarráðs samþykkti á fundi sínum í gær að vísa hinum umdeildu þéttingarreitum í Grafarvogi aftur til meðferðar skipulagsráðs borgarinnar. Reitirnir sem samþykktin tekur til eru við Starengi og Hverafold. Þéttingaráform fyrrverandi vinstrimeirihluta í borginni voru harðlega gagnrýnd og þá ekki síst af íbúum í Grafarvogi,“ segir Hildur ennfremur.


Sjá alla frétt Morgunblaðsins hér.


Fréttin var helsta frétt blaðsins á forsíðu þess í morgun.  - JGH

Áberandi frétt á forsíðu Morgunblaðsins.

Þétting byggðar hefur verið hitamál í Grafarvogi. Innviðir eins og skólar og helstu umferðaræðar þola ekki meira álag án úrbóta, að mati Grafarvogsbúa.