Hér er allt í röð og reglu! Líf og fjör í góða veðrinu og skundað í Gufunesið!

3. júlí 2026

Hásumar og líf og fjör hjá þessum ungu krökkum sem voru á leið í Gufunesið. Og hér var allt í röð og reglu þegar þau skunduðu yfir gangstéttirnar í fylgd með leiðbeinendum sínum.


Allt samkvæmt bókinni þegar kom að umferðarreglunum.


Sumarið er tíminn.


Það er eitthvað svo ferst og líflegt við að sjá svona fylkingar þramma áfram - og þar sem allir eru auðvitað í sumarskapi.


Gott mál. - JGH                     

Hér er beðið eftir því á rauðu ljósi að komast yfir Strandveginn við gatnamót Hallsvegar, Gullinbrúar og Strandvegar en það er þarna sem Strandvegurinn byrjar.

Allir saman nú; einn, tveir og þrír og drífum okkur yfir.