Íbúar Bryggjuhverfisins minnast Björns Ólafs sem hannaði og skipulagði hverfið
Íbúar í Bryggjuhverfinu minnast Björns Ólafs arkitekts í færslu á FB í morgun en hann hannaði og skipulagði Bryggjuhverfið á sínum tíma.
Björn bjó í París og lést á heimili sínu þar 27. júní síðastliðinn, 87 ára að aldri.
Hann skipulagði tvö hverfi á höfuborgarsvæðinu sem bæði eru reist á landfyllingum, Bryggjuhverfið við Grafarvog og Sjálandshverfi í Garðabæ.
Auk þess teiknaði hann allmörg hús í þessum hverfum og sömuleiðis nokkur stór fjölbýlishús við höfnina í Hafnarfirði.

Hér má sjá færslu Íbúasamtaka Bryggjuhverfisins í morgun, 4. júlí:
„Stjórn Íbúasamtaka Bryggjuhverfisins vill minnast Björns Ólafs arkitekts sem lést þann 27. júní síðastliðinn, 87 ára að aldri.
Björn var einn fremsti skipulagsarkitekt Íslands og sá sem átti hugmyndina að og skipulagði Bryggjuhverfið – hverfi sem hefur frá upphafi notið mikillar sérstöðu fyrir vandaða hönnun og einstaka tengingu við sjóinn og náttúruna.
Íbúar Bryggjuhverfisins njóta daglega þeirrar framtíðarsýnar sem Björn lagði til grundvallar. Skipulag gatna, staðsetning húsa, tenging við göngustíga, nálægð við sjóinn og útsýnið til Viðeyjar og Esjunnar mynda saman hverfi sem hefur sérstöðu í borgarlandslaginu.
Þótt Bryggjuhverfið sé enn að þróast og stækka í átt að Vogahverfinu er grunnurinn sá sami og Björn lagði upp með fyrir rúmum tveimur áratugum – að skapa fallegt og mannvænt hverfi þar sem borg og náttúra mætast.
Verk Björns munu lifa áfram í daglegu lífi íbúa hverfisins um ókomin ár og minna okkur á mikilvægi vandaðs skipulags, framsækinnar hugsunar og góðs arkitektúrs.
Stjórn Íbúasamtaka Bryggjuhverfisins vottar fjölskyldu Björns og aðstandendum samúðarkveðjur.
Takk fyrir Bryggjuhverfið Björn.“
Hér má einnig
sjá frétt Morgunblaðsins um andlát Björns.
- JGH

Bryggjuhverfið á fallegum vordegi séð frá Hamrahverfi í Grafarvogi. Grunnskóli Bryggjuhverfisins er Hamraskóli.

Steypuframkvæmdir í Gerðhömrum í Grafarvogi 1990. Eins og sjá má er ekkert Bryggjuhverfi komið.

Árið 1989. Horft í átt að Ártúnshöfða. Landfylling fyrir Bryggjuhverfið ekki hafin að neinu ráði.

Árið 1999. Þessi mynd í Morgunblaðinu eftir Árna Sæberg er frá tvöföldun Gullinbrúarinnar. Sjá má framkvæmdir í Bryggjuhverfinu og brúna húsið næst bryggjunni tilbúið en næstu hús í smíðum.


