Nú fjölmennum við í Smárann og hvetjum Fjölni í körfunni. Alvöru tvíhöfði hjá Fjölni á morgun!
7. febrúar 2026
Það er heldur betur stór dagur á morgun hjá Fjölni í körfunni og sýnir okkur hvað gróskumikið starf er unnið hjá körfuboltadeild félagsins. Fjölnir á tvö lið í úrslitum VÍS-bikarsins í yngri flokkunum en keppt verður á morgun í Smáranum til úrslita.
Núna er lag fyrir Grafarvogsbúa að fjölmenna í Smárann í Kópavoginum og hvetja strákana t il sigurs. Þetta er alvöru tvíhöfði á morgun, eins og Fjölnismenn segja sjálfir um keppnina á morgun.
„Við hvetjum alla okkar stuðningsmenn til að mæta á völlinn og styðja strákana okkar til sigurs! Áfram Fjölnir!,“ segir Arnar B. Sigurðsson Fjölnismaður.
Fyrri leikurinn hefst kl. 12:00
í 9. flokk drengja en þar keppir Fjölnir við ÍA
frá Akranesi.
Seinni leikurinn hefst kl. 16:45
í 11. flokki en þar keppir Fjölnir við KR.
Þetta verða magnaðir leikir og það verður auðvitað meiri möguleiki á að bikararnir komi í Grafarvoginn á morgun ef stákarnir eiga sitt lið í stúkunni sem hvetur þá til dáða. - JGH

9. flokkur. Kl. 12:00 í Smáranum á morgun.

11. flokkur. Kl. 16:45 í Smáranum á morgun.


