Íslandsmótið í golfi hefst á morgun í Grafarvogi. Korpan í mjög góðu standi
Augu allra kylfinga á Íslandi beinast að Grafarvogi næstu daga en Íslandsmótið í golfi hefst á Korpuvelli Golfklúbbs Reykjavíkur á morgun. Völlurinn er sagður í mjög góðu ásigkomulagi.
Keppnisdagar eru fjórir og lýkur keppninni síðdegis á sunnudag. Sýnt verður frá mótinu á RÚV.
Alls eru 132 kylfingar skráðir til leiks, 92 í karlaflokki og 40 í kvennaflokki. Á meðal keppenda eru fremstu kylfingar landsins, atvinnukylfingar og tíu fyrrverandi Íslandsmeistarar í golfi.
Sól skein í heiði þegar við litum við á Korpunni en rigningu er spáð á morgun þegar mótið verður sett.
Straumur kylfinga verður í Grafarvoginn næstu daga. - JGH

Korpan er paradís kylfinga og völlurinn sagður í fínu ásigkomulagi.

Korpuvöllur í Grafarvogi. Miðpunktur kylfinga á Íslandi næstu daga.
Blástur og blaktandi fánar.


