Eldur í verkstæðinu Við og Við við Gylfaflöt í morgun. Slökkvistarf gekk vel!

12. ágúst 2026

Betur fór en á horfðist í fyrstu þegar eldur kviknaði í trésmíðaverkstæðinu VIÐ & VIÐ við Gylfaflöt klukkan tíu í morgun.


Þegar Grafarvogur.net kom á svæðið hafði tekist að slökkva eldinn og slökkviliðsmenn byrjaðir að taka saman. Um tuttugu slökkviliðsmenn tóku þátt í slökkvistarfinu.


Einn starfsmaður fyrirtækisins barðist við eldinn í upphafi og var hann fluttur á bráðamóttökuna en hann mun ekki hafa meiðst alvarlega. 

Hér kasta menn mæðinni eftir vel unnið starf. Um tuttugu slökkviliðsmenn tóku þátt í slökkvistarfinu.

Eldurinn kom úr útsogskerfi frá sög og þaðan inn í geymsluhús fyrir sag. Þar kom upp mikill eldur,“ er haft eftir Jóni Kristni Valssyni, aðalvarðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á mbl.is


Þetta var töluverð vinna. Við þurftum að rífa upp eld- og loftræstistokka. Mestar skemmdir eru vegna reyks og svo varð skemmd á þakinu þar sem loftræstirör fer úr húsinu og yfir í geymsluskúr fyrir sagið. Hann er alveg ónýtur,“ segir Jón Kristinn ennfremur við mbl.is


Eðlilega hægðist á allri umferð um Strandveginn gegnt fyrirtæki meðan á slökkvistarfinu stóð enda aðgerðir slökkviliðsins fyrir allra augum þeirra sem þar áttu leið framhjá. - JGH

Bensínstöð Orkunnar og Gullnesti eru í næsta nágrenni við trésmíðaverkstæðið.

Trésmíðaverkstæðið er uppi í sundinu á milli Gúmmísteypunnar og NorDari.