Útför Haraldar konungs. Norski fáninn dreginn í hálfa stöng í Grafarvoginum í morgun

9. september 2026

Útför Haraldar Noregskonungs var gerð frá dómkirkjunni í Osló í morgun og að sjálfsögðu var norski fáninn dreginn í hálfa stöng í Grafarvoginum hjá Ólafi Sverrissyni verkfræðingi og eiganda stærsta fánasafns einstaklings á Íslandi.


Mikill viðbúnaður var í Noregi í morgun þegar Haraldur var borinn til  grafar.


Hann lést 28. ágúst sl., 89 ára að aldri.


Hann var konungur í Noregi í 35 ár og elskaður og dáður af þjóð sinni.


Fjöldi þjóðarleiðtoga var mættur til Osló til að fylgja konunginum og meðal þeirra var forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar, Björn Skúlason.


Athöfnin hófst klukkan 11 í dómkirkjunni í Osló og lauk klukkan 12.


Kista konungs var svo flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann er lagður til hinstu hvílu. - JGH

Norski fáninn dreginn í hálfa stöng í Grafarvogi í morgun.

Fyrir hádegi.

Eftir hádegi - að útför lokinni.

Eftir hádegi var fáninn dreginn í fulla stöng; að húni, eins og sagt er, en útför Haraldar var lokið í hádeginu.