Hvert þó í hoppandi! Góður ferðamáti en það má gera betur!
Ekki ætlum við á Grafarvogi.net að amast við hopphjólunum; rafskútunum. Þau sýnast góður og hagkvæmur ferðamáti.
En alltof oft eru hopp-hjólin, þess blágrænu, skilin eftir í algjöru rugli á götum og gangstéttum, þ.e. þeim er illa lagt.
Ef einhverjar reglur eru um það hvernig þeim sé lagt aðrar en að stilla þeim vel upp, svo þau séu ekki fyrir, þá er að minnsta kosti of oft ekki farið eftir þeim reglum eða umgengnisvenjum.
En þetta er eins og með svo margt annað; undir hverjum og einum komið.
Auðvitað verður manni oft á orði Hvert þó í hoppandi þegar þau liggja eins og hráviði hér og þar á víð og dreif; afskiptalaus og fyrir.
Ekki geri ég mér grein fyrir hver ábyrgð Hopp-fyrirtækisins er á hjólum sem í óreiðu á vegum og gangstéttum.
Ja, annað en að brýna fyrir hoppurum að leggja hjólunum betur.
Það er nú það!
- JGH

Þetta hopphjól lá svona á veginum við Geldinganeseiðið í morgun. Það má gera betur.

Þau voru raunar tvö við Geldinganesveginn.

Of oft liggja þau svona afskiptalaus, jafnvel í nokkra daga - en þetta þó úti í kanti.

Þetta er eins og með svo margt annað; undir hverjum og einum komið.

Hér er ágætlega lagt. Hopphjólin eru fínn ferðamáti en hopparar mega gera betur við að leggja hjólunum vel.

