Bikarinn fór á loft í Grafarvoginum í dag þegar Fjölniskonur sigruðu í 2. deild í knattspyrnu
Bikarinn fór á loft í Grafarvoginum í dag þegar Fjölniskonur urðu Íslandsmeistarar í 2. deild kvenna í knattspyrnu. Þær lönduðu titlinum með 3-3 jafntefli við sterkt lið Vestra frá Ísafirði.
Það er langt síðan að svo margir áhorfendur hafa mætt á heimavöll Fjölnis og var fjöldi áhorfenda um 800 manns.
Það var svo sannarlega rífandi stemning á pöllunum og þegar úrslitin lágu fyrir og ljóst að þær Fjölniskonur væru orðnar meistarar varð allt vitlaust - ef svo má segja - og af gleði og ánægju; auðvitað.
Við á Grafarvogi.net vorum að sjálfsögðu á vellinum til að fylgjast með þessum úrslitaleik.
Fjölniskonur; við segjum einfaldlega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.
Og gaman að hann færi á loft í Grafarvoginum. - JGH

Íslandsmeistarar kvenna í knattspyrnu í 2. deild; hið stórfína lið Fjölnis.

Vel gert Grafarvogsbúar, þið létuð ykkur ekki vanta á völlinn í dag og það var mikil hvatning fyrir stelpurnar.

Hér var staðan orðin 2-0 fyrir Fjölni og mikil kátína á áhorfendapöllunum.

Hrafnhildur Árnadóttir, fyrirliði Fjölnis, lyftir hér bikarnum við mikil fagnaðarlæti.

