Njólarækt Reykjavíkurborgar. Þetta er svo náttúrulegt og fallegt - ekki satt?

5. júní 2025

NJÓLARÆKT REYKJAVÍKURBORGAR!  Grafarvogur.net hefur gert umhirðu borgarinnar í Grafarvogi að umtalsefni í bráðum mánuð og gagnrýnt borgina sérstaklega fyrir að slá ekki grasbala við gangstéttir og vegkanta í hverfinu á sama tíma og nágrannasveitarfélögin eru fyrir löngu búin að setja kraft í slátt og umhirðu. Ólíkt hafast þau að!


Eftir smá könnunarferð í gærkvöldi mátti sjá að búið er að ræsa einhverjar sláttuvélar hjá borginni eða taka upp tólið og hringja í einhver þjónustufyrirtæki sem annast slátt og umhirðu - en það er vart meira en svo. Betur má ef duga skal.


Ennþá er ekkert farið að sinna umhirðu og slætti að neinu ráði í hverfinu og víða í óefni komið og óræktin allsráðandi. Sumum finnst þetta raunar fallegt og tala um að fíflar, njólar og óslegið gras við gangstéttir og vegkanta sé eitthvað svo náttúrulegt. 


Njólarækt Reykjavíkurborgar á hringtorginu við gatnamót Víkurvegar og Borgavegar hefur auðvitað fangað athygli Grafarvogsbúa. „Þetta er svo náttúrulegt og fallegt - ekki satt?“  - JGH


Njólarækt Reykjavíkurborgar á hringtorginu við Borgaveg og Víkurveg í Grafarvogi.

Njólinn dafnar vel!