Flaggað í Grafarvogi fyrir þjóðhátíðardegi Dana
6. júní 2025
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR DANA! Flaggað var í Grafarvoginum fyrir þjóðhátíðardegi Dana sem er 5. júní. Frændur vorir á Norðurlöndunum eru raunar duglegir að draga fána að húni í júní því þá halda Svíar, Grænlendingar og jú Danir sína þjóðhátíðardegi - og svo auðvitað við Íslendingar.
Á vísindavef Háskóla Íslands segir raunar um þjóðhátíðárdag Dana að þeir séu tveir, þ.e.16. apríl sem er afmælisdagur Margrétar II. (f. 1940), en að yfirleitt sé litið á 5. júní sem þjóðhátíðardaginn en þá var stjórnarskráin Dana staðfest árið 1849.
Það gustaði vel um danska fánann í Hamrahverfinu í norðanáttinni.
- JGH

Sá danski vatt aðeins upp á sig í norðangarranum.