Náðust á myndavélar kirkjunnar. Í fjórða sinn sem málað er yfir regnbogann í tröppunum
Starfsmönnum Grafarvogskirkju var brugðið þegar þeir mættu í morgun en málað hafði verið yfir regnbogafánann í kirkjutröppunum í nótt með íslensku fánalitunum.
Þetta mun vera í fjórða sinn sem unnin eru skemmdarverk á regnbogafánanum sem jafnan er málaður á kirkjutröppurnar.
Þegar Grafarvogur.net var á vettvangi í morgun voru kirkjutröppurnar girtar af með gulum borða merktum lögreglunni og ekki aðeins sem vettvangur afbrots heldur var málningin ennþá blaut.
„Okkur finnst þetta ákaflega dapurt,“ sagði Kristín Kristjánsdóttir djákni í samtali við Grafarvogur.net í morgun. „Við tilkynntum þetta strax til lögreglunnar sem skemmdarverk.“
Að sögn Kristínar náðust viðkomandi sem frömdu verknaðinn á myndavélar kirkjunnar og fær lögreglan það myndefni til skoðunar.
„Hér var starfsemi í kirkjunni fram til hálfellefu í gærkvöldi þannig að þetta var gert í skjóli nætur. Þetta er greinilega skipulagt athæfi og sýnist vel undirbúið.“
Kristín bætir því við að þetta leiðindamál hafi af kirkjunnar hálfu farið rétta leið og sé til rannsóknar hjá lögreglunni.
„Mér finnst þetta bera vott um ákveðið menningarstríð enda verið að nota táknmynd fánans til skemmdarverka.“
Kistulagning var í kirkjunni í morgun og nokkur fjöldi aðstandenda við þá athöfn og eðlilega gátu þeir ekki notað kirkjutröppurnar.
Þess má geta að í tengslum við athöfnina bakkaði líkbílinn að hluta yfir nýmálaða stéttina. - JGH

Kistulagning var í Grafarvogskirkju í morgun. Eðlilega gátu aðstandendur ekki notað kirkjutröppurnar og líkbíllinn bakkaði að hluta yfir nýmálaða stéttina.

Tröppurnar í Grafarvogskirkju í morgun. Sjá má gömlu liti regnbogafánans koma að hluta til í gegnum bláu málninguna.

Lögreglan kom á vettvang í morgun og girti svæðið af með sínum hefðbundna gula borða.

Umræður hafa verið um það á samfélagsmiðlum í dag að það vanti krossinn og því sé frekar um að ræða íslensku fánaveifuna fremur en íslenska fánann. En það er varla mikill eðlismunur á þessu athæfi við það.

Kristín Kristjánsdóttir djákni fyrir framan kirkjutröppurnar við Grafarvogskirkju í morgun.

