Blessuð sé minning Kristínar Maríu - afgreiddi þúsundir Grafarvogsbúa í Lyfju í Spöng
Samfélagið hér í Grafarvogi er nánara en margur heldur - og við þekkjum flest þau sem afgreiða í þeim verslunum sem við sækjum oftast.
Þannig var það með hana Kristínu Maríu Hallvarðsdóttur lyfjatækni í Lyfju í Spöng.
Hún bjó í Grafarvogi í yfir þrjátíu ár og vann í apótekinu í Spöng alveg frá því það var opnað á sínum tíma.
Eftir skammvinn veikindi lést hún 2. júlí sl. aðeins mánuði eftir að hún varð sjötug hinn 2. júní sl.
Hún ákvað að hætta að vinna í nóvember sl. vegna aldurs.
Hún afgreiddi þúsundir Grafarvogsbúa í gegnum tíðina. Var sérlega hjálpleg, vinaleg og með mikla þjónustulund.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar hún endurnýjaði ökuskírteinið vegna sjötugsafmælisins.
Og það segir svolítið um samfélagið okkar hér í Grafarvogi að hún fór ekki út fyrir bæjarlækinn til að láta taka mynd af sér heldur valdi ljósmyndastofuna í Spönginni.
Blessuð sé minning Kristínar Maríu. - JGH

Þekkt á meðal Grafarvogsbúa. Kristín María Hallvarðsdóttir lyfjatæknir vann í Lyfju í Spönginni frá því apótekið var opnað á sínum tíma. (Mynd: Litmynd ljósmyndastofa Spönginni).

Dánartilkynningin sem sonur Kristínar Maríu, Hallvarður Guðni Svavarsson, birti í gærkvöldi.


