Myndir frá Gethsemane garðinum í Jerúsalem þar sem Jesús var handtekinn
Föstudagurinn langi er mesti sorgardagur kirkjuársins og þennan dag minnast kristnir menn krossfestingar Jesú Krists. Í tilefni þess birti ég hér nokkrar myndir úr Gethsemane-garðinum í Jerúsalem - þar sem Jesús var handtekinn - en þessar myndir tók ég á ferðalagi í Ísrael snemma árs árið 2019 en úr þeirri ferð varð til heimildarmyndin Á biblíuslóðum sem sýnd var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut um jólin það ár. Uppistaðan í þeirri mynd er viðtal við svila minn, Gunnlaug A. Jónsson, fyrrum prófessor í guðfræði, og myndir úr ferðinni sem var fimm daga fjölskylduferð þar sem við nutum leiðsagnar Gunnlaugs sem var í rannsóknarleyfi í borginni á þessum tíma.
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar, sem eru um píslarsöguna, pínu og dauða Jesú Krists, hafa um árabil verið lesnir upp í nokkrum kirkjum landsins á þessum degi.
Eftir síðustu kvöldmáltíðina (að kvöldi skírdags) fóru Jesús og lærisveinar hans yfir Kidron-dalinn í aldingarðinn Gethsemane undir vesturhlíð Ólífufjallsins. Þetta er aldingarður af fornum ólífutrjám. En nafnið Gethsemane þýðir „ólífupressa“.
Jesús eyddi síðustu stundum lífs síns með postulunum í Gethsemane-garðinum. Þar upplifði hann angist sína og bjó sig undir það sem koma hlaut en hann vissi hvað var í vændum.
Trén í garðinum eru þeirrar gerðar að þau verða allt að tvö þúsund ára gömul. Við hlið aldingarðsins er afar falleg kirkja sem nefnd hefur verið ýmist Kirkja allra þjóða eða Kirkja angistarinnar með vísan til angistar Jesú.
Heimildir herma að Júdas hafi hengt sig í þessum garði fullur iðrunnar eftir að hafa svikið Jesú. - JGH

Nafnið Gethsemane þýðir „ólífupressa“. Í miðjum aldingarðinum var tæki sem notað var til að kreista ólífurnar þar til þær gáfu dýrmætu olíuna. Grunnur ólífupressunnar er risastór steinskál lengst til hægri á myndinni. Gífurlegur myllusteinn passar í þá skál.

Til eru frásagnir af því að Jesús og postularnir hafi oft lagt leið sína í Gethsemane-garðinn. Trén í garðinum eru þeirrar gerðar að þau verða allt að tvö þúsund ára gömul.

Í þessum garði eyddi Jesús síðustu stundum sínum og hér var hann handtekinn.

Gethsemane aldingarðurinn er undir vesturhlíð Ólífufjallsins.

Hér er horft í átt í Ólífufjallsins af efstu hæð Davíðssafnsins. Moskan með gyllta þakinu fyrir miðri mynd er Musterishæðin eða Al Aksa moskann sem er moska múslima innan gömlu borgarmúranna í Jerúsalem og undir stjórn múslima. Al Aksa þýðir „fjarlægur staður“ og vísar til landfræðilegrar staðsetningar langt frá Mekka. Iðulega er vísað til Al Aksa sem þriðja helgasta stað Íslam, á eftir Mekka og Medína.

Horft yfir Jerúsalem frá Ólífufjallinu en fjallið er kunnur útsýnisstaður ferðamanna.

Við hliðina á Gethsemane-garðinum er afar falleg kirkja sem ýmist er nefnd Kirkja allra þjóða eða Kirkja angistarinnar. Hér er altaristaflan í þeirri mögnuðu kirkju.

Heimildarmyndina Á biblíuslóðum gerði ég á árinu 2019 og sýndi á sjónvarpsstöðinni Hringbraut um jólin það ár. Í myndinni ræði ég við Gunnlaug A. Jónsson, fyrrum prófessor í guðfræði við HÍ, sem er svili minn og við fjölskyldan ferðuðumst með um landið á meðan á dvöl okkar stóð og ég sankaði að mér efni. Hér er horft yfir Jerúsalem frá vesturhlið Ólífufjallsins.

Gunnlaugur A. Jónsson, fyrrum prófessor i guðfræði við Háskóla Íslands, fyrir utan þekkta bóka- og gjafavöruverslun sem er gegnt Davíðssafninu í Jerúsalem.

Á efstu hæð Davíðssafnsins sem er innan gömlu borgarmúranna í Jerúsalem. Eðli málsins samkvæmt liggja ferðlög til Ísraels núna niðri en flugfélagið WOW flaug beint til borgarinnar um tíma.
Gethsemane-garðurinn.
Horft frá Masada-virkinu yfir Dauðahafið sem liggur að landamærum Jórdaníu.


