Að kvöldi skírdags í Grafarvogi - fallegt sólarlag

2. apríl 2026

Það var ekkert annað að gera en stöðva bílinn í kvöld og mynda þetta fallega sólarlag að kvöldi skírdags. 


Helgir dagar eru núna í dymbilvikunni.


Pálmasunnudagur var sl. sunnudag en hann er haldinn til minningar um innreið Jesú í Jerúsalem.


Það var svo að kvöldi skírdags sem Jesús átti síðustu kvöldmáltíðina með lærisveinum sínum og hafa nokkrar sóknir þann sið að vera með heilaga kvöldmáltíð í kirkjum þetta kvöld.


Meðfylgjandi mynd var tekin kl. 20:12 í kvöld og horft yfir Sorpu og gömlu skrifstofubyggingu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi að höfninni og að sólarlaginu við sjóndeildarhringinn. - JGH 

Sólarlag við sjóndeildarhring.

Gylltir geislar baða sjóinn.