Miðbæjarrölt og brölt á föstudeginum langa
Það var veðrið til þess að gera sér bæjarferð eftir hádegi í dag, föstudaginn langa, og rölta og brölta um miðbæinn. Ef til vill of mikið sagt að brölta því við hreyfðum okkur ekki mjög klunnalega. Maður bröltir hins vegar stundum á fætur.
Hvað um það, miðbærinn skartaði sínu fegursta í sólskininu og sólbráðin var áberandi á þessum þriðja degi apríl þar sem svolítið vetrarríki setur enn svip sinn á bæinn.
Við birtum hér smá syrpu af gönguferðinni. - JGH

Styttan af Kristjáni 9 með stjórnarskrána sem við Íslendingar fengum frá Danakonungi árið 1874 án þess að við Íslendingar kæmum að gerð hennar. Núna er mikil umræða um ESB og stjórnarskrá Íslands.

Hinn 1. febrúar 1904 fengu Íslendingar heimastjórn. Þingræði var fest í sessi og Stjórnarráð Íslands stofnað. Hannes Hafstein var fyrsti ráðherra Íslendinga. Ráðherrann.

Styttan af Hannesi Hafstein fyrir utan stjórnarráðið.

Hér var þjóðfundurinn 1851 haldinn. „Vér mótmælum allir.“

Mikið var nú ánægjulegt að Torfusamtökin hafi bjargað þessari húsaröð frá niðurrifi; Bernhöftstorfunni.

Torfan.

Að sjálfsögðu er Torfan græn.

Frá Torfunni að Tjörninni.

Tjörn og Tjarnargata.

Húsið við Fríkirkjuveg 11 var byggt árið 1908 af Thor Jensen.

Skrifstofa embættis forseta Íslands.

Hér er góður hljómur.

Mest myndaða bygging á Íslandi.

Þrenn listaverk. Hnitbjörg, hús Einars Jónssonar er auðvitað listaverk út af fyrir sig.

Svolítið gluggaveður. Auðvitað þurfti að klæða sig vel á bæjarröltinu. Helga Brynleifsdóttir, annar eigenda Grafarvogur.net.

Frakkaklæddur Kristján níundi með fyrstu stjórnarskrána.

