Myndavélar við bílastæðin við Egilshöll. Rukkað verður fyrir stæðin næst húsinu eftir 15 mín. og önnur stæði eftir 3 klst.

17. apríl 2026

Fasteignafélagið Heimar, eigandi Egilshallarinnar, er núna að setja upp myndavélar við bílastæðin við Egilshöll til að stýra umferðinni betur á svæðinu og taka upp gjaldskyldu eftir ákveðnum reglum, t.d. verða fyrstu þrjár klukkustundirnar á almennum stæðum ókeypis.


Komið verður á bílastæðagjöldum með þeim hætti að innheimt verður fyrir stæðin næst húsinu, forgangsstæði, eftir fyrstu 15 mínúturnar. Þetta eru stæðin í boganum næst aðalinnganginum sem og forgangsstæði fyrir aftan húsið.


Þá verða fyrstu 3 klukkustundirnar inni á almennu bílastæðunum ókeypis en rukkað verður fyrir hvern klukkutíma eftir það um 450 krónur. Með öðrum orðum; fjórði tíminn er á 450 krónur.


Þetta þýðir að hægt er að skjótast í bíó og á íþróttaæfingar án þess borga.

Jarðvegsvinna í fullum gangi við innkeyrsluna að sunnanverðu inn á bílastæðin við Egilshöll og fyllt yfir tengingar í jörðu.

Miklar merkingar eru víða að sjá á bílastæðunum við Egilshöll og ljóst að talsverðar framkvæmdir verða þarna á næstunni við að koma upp myndavélum sem mynda alla bíla sem fara inn á stæðið. Sjá frétt frá Heimum hér.


Pétur Heimisson, samskiptastjóri Heima, sagði við Grafarvogur.net fyrr í dag að þetta væri gert til að stæðin nýtist betur hjá þeim sem ættu leið í Egilshöll.


Nokkur misnotkun hefur verið í gangi með stæðin og hefur flutningabílum, trukkum og hjólhýsum verið lagt í stæði á svæðinu langtímum saman og þannig gert þeim sem eiga raunverulegt erindi í húsið erfiðara fyrir að finna stæði. Sem og hafa bílastæði verið notuð af bíleigendum utan af landi á leið í bæinn en fara ekki í Egilshöll.


„Nýja fyrirkomulagið á að koma í veg fyrir þetta og stýra umferðinni,“ segir Pétur.


Nokkuð hefur borið á því að starfsmenn Egilshallar leggi á stæðunum næst aðalinnganginum og blokkeri þannig stæðin fyrir þá sem þurfa að skjótast sem snöggvast inn í húsið.


Gjaldið eftir fyrstu 15 mínúturnar á að bæta nýtinguna á bílastæðunum í boganum fyrir framan aðalinnganginn og fyrir aftan húsið. - JGH

Hér er búið að moka yfir kapla fyrir myndavélarnar við innkeyrsluna að sunnanverðu.

Tenglar fyrir myndavélarnar. Allt gengur þetta út á aðgangsstýringu og að stæðin verði raunverulega notuð af þeim sem eiga erindi í Egilshöll.

Appelsínugular merkingar blasa við á nokkrum stöðum á stæðinu. Hér verður sett upp myndavél. Í boganum beint fyrir framan aðalinnganginn ætti að vera auðveldara í framtíðinni að fá stæði fyrir þá sem ætla rétt sem snöggvast að skjótast inn í húsið.

Hér er búið að merkja - og skóflurnar fara á kreik á næstunni.

Sléttstraujað skal það vera fyrir kapla og jarðtengingar.

Það dylst engum að það er heilmikil vinna framundan við að setja upp myndavélar við Egilshöll sem eiga að stýra umferðinni betur inn á svæðið og inni á svæðinu. Forgangsstæðin næst húsinu og á bak við; gjaldskyld eftir 15 mín. Almenn stæði: Ókeypis fyrstu 3 klukkustundirnar en 450 kr. á klst. eftir það, þ.e. 4 klukkustundir eru á 450 kr.