Enn er ekkert farið að hreinsa eftir brunann í skemmunni í Gufunesi í janúar

17. apríl 2026

Það vekur athygli að enn bólar ekkert á hreinsunarstarfi í vöruskemmunni í Gufunesi sem varð eldi að bráð 12. janúar sl. og fór svo sannarlega ekki fram hjá Grafarvogsbúum.


Þegar við vorum þarna á ferð um helgina blasa við brunarústir og þannig hefur þetta verið allt frá því við vorum þarna á ferð í janúar fljótlega eftir brunann. Hvernig væri nú að eigandi skemmunnar, Reykjavíkurborg, taki sig til að láti hreinsa svæðið.


Gyllta ströndin í Gufunesi er þarna rétt við skemmuna og oft margt um manninn í gufuböðum sem eru þarna við ströndina - eða á leið að leigja sér sjóþotur.


Fyllsta ástæða til að vekja athygli á þessu. Hér má gera betur. - JGH

Föstudagurinn 17. apríl 2026.

Mánudagurinn 26. janúar 2026.

Mánudagurinn 26. janúar. Horft inn í gáminn fyrir utan geymsluna.

Föstudagurinn 17. apríl. Skúffurnar nánast i sömu stöðu og í janúar.

Föstudagurinn 17. apríl. Hvernig væri nú að taka til við að hreinsa?

Hvers vegna er hreinsunarstarf ekki hafið?

Skemman er rétt við gylltu ströndina í Gufunesi en fjöldi fólks leggur leið sína þangað. Viðey blasir við.

Eftir hverju er verið að bíða?