Nemendur Borgarholtsskóla tóku Jagúar nóbelskáldsins algerlega í gegn
BORGÓ OG BÍLAR! Borgarholtsskóli er með afar öfluga bílaviðgerðadeild og um sextíu nemendur skólans komu að því skemmtilega verkefni að taka hinn þekkta Jagúar nóbelskáldsins í yfirhalningu; laga, sparsla og sprauta. Núna er bíllinn tilbúinn og verður til sýnis á morgun, laugardag, í hlaðinu á heimili skáldsins við Gljúfrastein.
Jagúar skáldsins var lengi vel í hlaðinu fyrir framan safnið við Gljúfrastein en þessi eðalvagn var farinn að láta á sjá og úr varð fyrir um fjórum árum að yfirhalningin yrði verkefni nemenda í bílaviðgerðadeild Borgarholtsskóla.
RÚV birti á þeim tíma mjög skemmtilega frétt um þetta framtak. Sjá má myndbandið hér.
Það er fyllsta ástæða til að óska nemendum og kennurum Bogarholtsskóla sem komu að þessu verkefni til hamingu með árangurinn. Bíllinn er eins og nýr eftir að farið var mjúkum höndum um hann í skólanum.
Velt gert! Og hvers vegna ekki að skoða dýrgripinn um helgina og líta á magnaða sýningu um skáldið í safninu á Gljúfrasteini í leiðinni. - JGH

Um sexíu nemendur Borgarholtsskóla komu að verkefninu.

Takið eftir bílnúmerinu G145.