Alaskalúpínan í öllu sínu veldi - áttatíu ár síðan fyrstu fræin komu til landsins

16. júní 2025
LÚPÍNAN. Jónas Ragnarsson, ritstjóri og íbúi í Grafarvogi, er með skemmtilegt innlegg á FB um lúpínuna þar sem hann segir að nú sé kominn sá tími þegar lúpínubreiður setji svip sinn á opin svæði í Grafarvogi, til dæmis milli Hallsvegar og Gagnvegar.

Við grípum hér niður í færsluna: „Á þessu ári eru áttatíu ár síðan Hákon Bjarnason skógræktarstjóri kom úr fræsöfnunarferð til Alaska en þar óx lúpína „villt um allt“. 

Var talið að plantan gæti orðið góð til landgræðslu hér, sem raunin varð. Sumum finnst hún nokkuð ágeng en sumir segja að hún hopi eftir nokkur ár fyrir öðrum gróðri.

Fyrir áratug var lúpína sögð þekja 0,3% landsins“ - JR/JGH