Það gekk vel á birgðirnar af páskaeggjum í Bónus og Hagkaup
4. apríl 2026
Það hafði gengið vel á birgðirnar af páskaeggjunum í Bónus og Hagkaup þegar við áttum þar leið um á laugardagskvöld.
Stæðurnar af páskaeggjum sem hafa sett svip sinn á þessar verslanir undanfarnar vikur svo til horfnar og bara komið dágott autt rými fyrir vikið.
Það er ekkert smá magn af páskaeggjum sem landinn brýtur og bragðar á. - JGH

Í Hagkaup á laugardagskvöld fyrir páskadag. Jú, jú, hægt að bjarga sér um nokkur egg en stæðurnar meira og minna horfnar.

Hagkaup á laugardagskvöld. Það er ekki mikill afgangur hér.

Nánast allt búið og önnur stæðan þess utan meira og minna tóm.

Ekki er allt sem sýnist - hér er holur veggur í síðustu stæðunni í Bónus.

Í Bónus í Grafarvogir hefur varla verið hægt að þverfóta fyrir stórum og miklum páskaeggjastæðum undanfarnar vikur. En nægt var olnbogarýmið um kvöldmatarleytið á laugardagskvöld fyrir páskadag.

