Mögnuð Unnur Ösp í Sölku á sviði Söguloftsins í Borgarnesi

4. júní 2026

Ef ekki sú besta, þá í hópi þeirra allra bestu. Það verð ég að segja um Unni Ösp Stefánsdóttur leikkonu.


Hún er afbragðsgóð í verkinu og einleiknum Salka – ástin og dauðinn sem sýnt er í Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi en Grafarvogur.net brá sér út fyrir bæjarlækinn sl. sunnudag til að sjá þessa frábæru sýningu.


Verkið var frumsýnt í febrúar og hefur notið mikilla vinsælda og fara þær ekki dvínandi því uppselt var á báðar sýningarnar sl. sunnudag.


Unnur Ösp Stefánsdóttir leikur og skrifar leikgerðina upp úr einu frægasta verki Halldórs Laxness; Sölku Völku, og leysir það sérlega vel af hendi. Sýningin er byggð á fyrri hluta Sölku Völku, Þú vínviður hreini.


Tónlistaráhugi skáldsins kemur vel fram í sýningunni en hann hafði mikið dálæti á þýska tónskáldinu Jóhanni Sebastian Bach. Sagt er að Laxness hafi oft á tíðum skrifað með tónlist Bach lágstemmda á fóninum.


Unnur Ösp er ekki alveg óvön því að vera ein á sviði og bregða sér í mismunandi hlutverk. Hún lék meðal annars í einleiknum Saknaðarilmi en þá leikgerð vann hún upp úr verkum Elísabetar Jökulsdóttur.


Eiginmaður Unnar Aspar, Björn Thors, leikstýrir báðum einleikjunum.


Leiksigur. - JGH

Söguloftið í Borgarnesi er líklegast minnsta leikhús landsins og nær leikurum komast áhorfendur ekki. Mynd: Hallgrímur Helgason.

Tæknibúnaður í Söguloftinu er ekki fyrirferðarmikill.

Það er þó einn og einn kastari í lofti.

Söguloftið er í risi gamals pakkhúss - einnar elstu byggingar í Borgarnesi.

Landnámssetrið í Borgarnesi fagnar 20 ára afmæli sínu á árinu. Veitingahúsið er vinstra megin og Söguloftið í risi gamla pakkhússins hægra megin.