Öngþveitið í umferðinni við Sorpu við Sævarhöfða - fleiri sagðir sækja í stöðina

4. júní 2026

Við birtum nýlega frétt af öngþveiti, slysahættu og glannaakstri við biðröðina í Sorpu við Sævarhöfða.


Þegar við vorum þarna á ferð sl. mánudag, 1. júní, var allt í rugli eftir að bíll sem kom úr norðri eftir Sævarhöfðanum virti ekki reglu Sorpu um biðröð úr suðurátt inn á svæðið þannig að úr varð umferðarteppa og öngþveiti sem aftur jók á slysahættuna í biðröðinni.


Við fengum svo ábendingu um það í skilaboðum í gærkvöldi að þessi aukna aðsókn í Sorpu við Sævarhöfðann væri meðal annars til komin vegna minni þjónustu Sorpu við Dalveg í Kópavogi.


Þess má geta að Sorpa við Sævarhöfðann lokar í ágúst þegar ný stöð verður opnu við Lambhagaveg í Grafarholti. - JGH

Gyllti pallbíllinn sem kom akandi eftir Sævarhöfðanum úr norðri beygði inn á aðreinina í Sorpu en þar var allt stopp fyrir og fyrir vikið varð mikill umferðarhnútur þegar öll umferð úr norðri stöðvaðist - og þeir ökumenn urðu óþreyjufullir.

Jæja, sá gyllti kominn lengra inn og fyrir vikið losnaði um hnútinn. Þessi blái lengst til hægri stöðvaði hins vegar alla umferð á meðan í norðurátt - en einhverjir bílar renndu þó hægra megin framhjá honum í holóttum kantinum þar sem biðröðin er alla jafna.

Þær eru oft langar biðraðirnar við Sorpu við Sævarhöfðann. Stöðin lokar í ágúst þegar ný stöð í Úlfarsárdal verður opnuð.