Mikið stuð í Gufunesi þegar leitað var að páskaeggjum, farið í húlakeppni og leikið sér í tækjunum

15. mars 2026

Það var líf og fjör í Gufunesi í morgun þegar sjálfstæðisfélögin í Grafarvogi og Árbænum buðu upp á páskaeggjaleit, húlakeppni, ratleik og kaffisopa. Útivera, smá stuð og sætindi á sunnudagsmorgni - það er í góðu lagi. Þarna iðaði allt af lífi og ungviðið skemmti sér svo sannarlega.


Páskakanínan faldi yfir eitt þúsund egg á nokkuð stóru svæði og er þess gætt að allir fái egg og enginn fari tómhentur heim.


Þegar Grafarvogur.net leit við var fjölmenni á svæðinu og frambjóðendur flokksins duglegir við að þjóna gestum.


Páskaeggjaleitin er haldin á hverju ári þannig að í sjálfu sér er hún ekki upphafið að kosningabaráttu flokksins - en auðvitað þjappar svona samvera fólki saman og skerpir á baráttuandanum á kosningaári.


En það er þó ekki tilgangurinn, þetta er fyrst og fremst gert til að skemmta krökkunum og ungviðinu og hafa gaman. Og það tókst svo sannarlega á leiksvæðinu við Gufunesbæinn í morgun.


Ánægjulegt hvað allir stöldruðu lengi við og hvað börnin nýttu sér svæðið til að leika sér. Góð útivera í leiðinni.  - JGH 

Hressir strákar sem sögðu að þarna væri egg á bak við fjalirnar. Það þurfti ísbrjót til að ná því.

Hér er hlegið dátt í vagninum.

Aðeins alvarlegri þegar þau stilltu sér upp.

Spennandi að fara í gegnum göngin.

Það þarf nú að prófa dæluna.

Það er bara heilmikið mál að halda á húlahringjunum.

Hér er klappað fyrir þessum snillingi.

Þessi komu úr Árbænum. Auður Jónsdóttir með dótturina Hörpu Hafþórsdóttur.

Líf og fjör og leikið sér.

Páskakanínan dreifði yfir 1 þúsund páskaeggjum í morgun. Það var Hulda Guðmunda Óskarsdóttir Grafarvogsbúi sem var í því hlutverki og hér er hún í miklu stuði með þingkonunni og Grafarvogsbúanum Diljá Mist Einarsdóttur. Þær eru hér með hvuttann hennar Diljár, hann Simba. Svolítið bangsalegur sá og þefaði ekki upp nein egg. Ekki nægilega sterkt lykt af þeim, sagði Simbi.

Efstu menn á lista sjálfstæðismanna létu sig að sjálfsögðu ekki vanta. Hér er Grafarvogsbúinn Sigrún Ásta Einarsdóttir með þeim Bjarna Guðjónssyni, í 2. sæti listans, og Hildi Björnsdóttur sem leiðir listann.

Hjónin Einar Friðriksson og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi með dótturina Ragnhildi Erlu Einarsdóttur.

Borgarfulltrúarnir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Björn Gíslason, formaður Fylkis í Árbænum.

Þau sáu um kaffið og það var í nógu að snúast í uppáhellingunni. Þetta eru þau Guðrún Helga Theodórsdóttir, Árbænum, og Halldór Jón Theodórsson, frumbyggi í Grafarvogi. „Við erum ekki systkini en auðvitað flokkssystkini.“

Ekki bara páskaeggjaleit heldur góð útivera og skemmtun á sunnudagsmorgni í Grafarvogi.

Blöðrur í bláum lit - segir það sig ekki sjálft á þessum viðburði sjálfstæðismanna í Grafarvogi og Árbænum?