Mjög áhrifaríkt! Ungir sjálfstæðismenn stóðu heiðursvörð við útför Davíðs Oddssonar

14. mars 2026

Það var sérlega áhrifaríkt að sjá unga sjálfstæðismenn standa heiðursvörð með íslenska fánann við útför Davíðs Oddssonar sl. föstudag, 13. mars. Þeir fylgdust með útförinni á stórum skjá í kirkjunni og fylktu síðan liði, hver og einn með íslenska fánann, út á Eiríksgötuna til að standa þar heiðursvörð þegar ekið var með kistu Davíðs í Fossvogskirkjugarð. Vel gert og fylsta ástæða til að hrósa ungum sjálfstæðismönnum fyrir þennan virðingarvott við þennan áhrifamikla fyrrum leiðtoga flokksins sem gegndi á sarfsævi sinni stöðu borgarstjóra, forsætisráðherra, seðlabankastjóra og ritstjóra Morgunblaðsins. - JGH

Stóðu heiðursvörðinn við Eiríksgötuna; gegnt kirkjunni.

Fallegur dagur og ágætis veður þó oft sé hann napur á Skólavörðuholtinu.

Íslenski fáninn tignarlegur og áberandi.

Ungir sjálfstæðismenn fylgdust með útförinni á stórum skjá í kirkjunni.

Gengið fylktu liði úr kirkjunni að Eiríksgötu þar sem þau stilltu sér upp. 

Vel gert og stórt hrós til ungra sjálfstæðismanna.

Heiðursvörður til að heiðra minningu Davíðs og votta honum virðingu sína. Ísland er land þitt, var spilað að athöfn lokinni í Hallgrímskirkju og átti það vel við.