Mæðginin Benedikt og Hrafnhildur fyrst á vettvang og sáu háhyrningin synda í land

10. júní 2025

FYRST Á VETTVANG! „Við mamma vorum að koma úr matarboði og ókum niður eftir Strandveginum og sjáum þá sporðinn á háhyrningnum í víkinni. Hann synti hér í víkinni í svona tíu mínútur en strandaði á grynningum í fjörunni hinum megin í víkinni, nálægt golfvellinum, en losaði sig þar og okkur til mikillar furðu synti hann á fullu upp í fjöruna,“ segir Benedikt Haraldsson sem varð vitni að því ásamt móður sinni, Hrafnhildir Björnsdóttur, þegar háhyrningurinn tók stímið beint upp í fjöru í Gorvíkinni í kvöld.


Hrafnhildur náði einstöku myndbandi af þessum óvenjulega náttúrufyrirbrigði - og hefur Grafarvogur.net fengið leyfi hjá henni til að birta þetta myndband.


Benedikt hringi í neyðarlínuna 112 til að láta vita af strandinu. „Við biðum í um tvær mínútur þar sem við héldum að hann væri að losa sig en svo sáum við að hann var fastur.“


Benedikt segist ekki hafa verið alveg viss um hvernig hann átti að tilkynna þetta. „Ég sagði bara að ég vissi ekki almennilega hvert ég ætti að hringja en vildi láta vita að hvalur hefði strandað hér í fjörunni rétt við Grafarvoginn. Ég hugsaði með mér að þetta væri óvenjuleg tilkynning,“ segir Benedikt Haraldsson. - JGH

Háhyrningurinn í fjörunni í kvöld.  (Mynd: JGH).

Hvalrekinn varð fyrir neðan áttundu brautina á Korpunni - þeim hluta vallarins sem nefnist Sjórinn.