Heimsviðburður. Grafarvogur.net sýnir hér myndband þegar háhyrningurinn synti í land
EINSTAKT MYNDBAND! Grafarvogur.net frumsýnir hér fyrstur allra fjölmiðla einstakt myndband af því þegar háhyrningurinn tók stímið og synti beint upp í land í Gorvík skammt frá Geldinganesi í kvöld.
Hrafnhildur Björnsdóttir tók myndbandið og gaf Grafarvogi.net leyfi til að birta myndbandið.
Athugið að öllum fjölmiðlum er óheimilt að nota myndbandið nema með leyfi Hrafnhildar - en líklegt er að þetta myndband verði sýnt í sjónvarpsstöðvum víða um heim svo einstakt er það - enda ekki á hverjum degi sem háhyrningu syndir í land og festir sig í fjörunni nánast í beinni útsendingu. - JGH
Heimsviðburður við Grafarvogshverfið. Hér næst myndband af því þegar háhyrningur tekur stímið og syndir rakleitt upp í fjöruna. Fjölmiðlar mega ekki birta nema með leyfi Hrafnhildar.