Háhyrningur synti upp í fjöru í Gorvík við Geldinganes - fyrir neðan golfvöll Korpu

10. júní 2025

HVALREKI!Háhyrningur synti rakleitt upp í fjöru í Gorvík skammt frá Geldinganesi upp úr kl. 21:00 í kvöld og urðu nokkrir sjónarvottar að þessum einstæða atburði, meðal annars nokkrir kylfingar en Gorvík er víkin fyrir neðan 8. brautina á Korpúlfsstaðavellinum, Sjónum. 


Það voru þó mæðginin Benedikt Harldsson og Hrafnhildur Björnsdóttir sem voru fyrst á vettvang og urðu vitni að því þegar háhyrningurinn tók stímið beint upp í fjöru og festist.


Þegar Grafarvogur.net mætti á vettvang höfðu þónokkrir Grafarvogsbúar gert sér ferð niður að Gorvíkinni til að líta háhyringinn augum í fjörunni og verða vitni að þessum óvenjulega atburði.   - JGH