Meistaramót GR hefst á morgun, 5. júlí. Leikið bæði á Korpu og í Grafarholti
Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur, GR, hefst á morgun, 5. júlí, og stendur yfir til laugardagsins 11. júlí þegar síðustu keppendur í meistaraflokki karla og kvenna ljúka leik - klára sinn hring.
Eins og undanfarin ár verðu leikið á Grafarholtsvelli og á Korpúlfsstaðarvelli, Sjórinn/Áin.
Það var ekki margt um manninn á Korpunni í dag þegar við á Grafarvogur.net áttum þar leið um.
En glæsilegir voru Korpúlfsstaðir - þetta magnað hús sem Thor Jensen byggði sem mjólkurbú.
Þess má geta að Thor keypti jörðina árið 1922 af Einari Benediktssyni skáldi en hann hafði eignast jörðina í arfskiptum eftir föður sinn Benedikt.
Thor reisti þar núverandi hús og fullkomið mjólkurbú sem lagðist af 1934. Reykjavíkurborg keypti eignina af Thor árið 1942 og reyndi þar mjólkurbúskap um tíma.
Það var smá blástur á Korpúlfsstöðum í dag en það verður líka blástur á morgun þegar blásið verður til leiks í meistaramótinu.
Vonandi verða veðurguðirnir hliðhollir GR-ingum alla næstu viku - líkt og í dag.
- JGH
Blástur á Korpunni í dag og líka á morgun þegar blásið verður til leiks!


