Ríkið hækkar skattana um 10 milljarða - markaðsvirðið fellur um 50 milljarða
VEIÐIGJÖLDIN LÆKKA MARKAÐSVIRÐIÐ! Áform ríkisstjórnarinnar um að hækka veiðigjöldin á útgerðir landsins hafa þegar haft mikil áhrif á virðí hinna þriggja skráðu sjávarútvegsfyrirtækja í Kauphöllinni; Brim, Síldarvinnslunar og Ísfélagsins.
Frá því að áformin voru kynnt hefur virði þessara þriggja félaga minnkað um 50 milljarða króna í Kauphöllinni.
Núna vaknar spurningin hvort ríkisstjórnin hækki enn þær miklu álögur sem ríkið leggur þegar á bankana eftir söluna á Íslandsbanka þar sem hlutur ríkisins á fjármálamarkaði hefur minnkað. Landsbankinn er núna stærsta eign ríkisins á fjármálamarkaðnum.
Um þetta er fjallað í nýjasta hlaðvarpsþætti okkar Sigurðar Más Jónssonar, HLUTHAFASPJALLINU, á Brotkast.is.
Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Jensen Hjálmarsson, stofnandi greiningarfyrirtækisins Akkurs og fara þeir Sigurður Már Jónsson yfir þessi mál og spyrja sig að því hvort pólitísk óvissa sé að aukast varðandi rekstrarumhverfi bankanna í ljósi þess sem gerst hefur í sjávarútveginum.
Þess má geta að teygnin í skattheimtunni er mikil því ríkið áformar að auka skattheimuna á allar útgerðir landsins um 10 milljarða - en áhrifin á þau þrjú sjávarútvegsfyrirtæki sem skráð eru í Kauphöllinni eru sláandi; eigendur þeirra; einstaklingar, lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og ýmis félög, hafa tapað 50 milljörðum fyrir vikið. - JGH